Kannski kominn tími til að æla e-u útúr sér

Maður hefur nú ekki bloggað síðan fyrir Krítarferð sem, by the way, var alveg frábær !

Margt hefur nú gerst síðan síðasta blogg... maður er m.a. annars orðinn StórFrændi eftir að Villa systir ól son þann 10. september.  Móður og barni heilsast vel nú tæpum tveim vikum eftir að hann kom í heiminn og það er hægt að skoða myndir af litla drengnum hér á síðunni.  Ekki leiðist mér það að margir segja að peyjinn sé líkur mér... allir segja að hann sé svo sætur :D

Það má líka finna nokkrar myndir frá Krít svona í bland, það var tekið nóg af myndum þar skal ég segja ykkur.

Látum myndirnar tala sínu máli... ég nenni ekki að skrifa meira.  Þetta blogg er nú meira svona til þess að sýna smá lit :)


Það styttist

Fjórir dagar gott fólk, fjórir dagar segi ég og skrifa.

Ja bíddu nú við

Höldum áfram að leika okkur með tölur því stærðfræðin er svo skemmtileg.

Nú eru 11 dagar þangað til við förum út, daddara !!


Karfi

Kannski kominn tími til að koma einhverju niðrá blað...

Le Pall er 100% klár en við kláruðum að bera á skjólveggina í bíðunni í dag.  Hugborg fór svo í vinnuna og ég kláraði að bera á og skellti mér svo í sólbað svona til að hita upp fyrir útlöndin.  Nú er ég eldrauður í framan, á bringunni og höndunum en mig svíður samt ekki í þetta og vonast ég til þess að ég sé ekki skaðbrunninn.  En ég er þó a.m.k. búinn að hita húðina vel upp og það var aðalmarkmiðið :D

Fyrsta vikan af sumarfríinu mínu er að verða búin og ég get ekki annað sagt en að það er tær snilld að vera í fríi.  Maður er svo farinn að telja niður dagana þangað til að við förum til Köben/Krítar og ef stærðfræðin (starfræðin) er ekki að bregðast mér þá eru 12 dagar þangað til við förum.

Nóg komið í bili, ég ætla að fara að bera á mig Aloe Vera krem til að kæla mig aðeins niður. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Grétar

Grétar Magnússon
Grétar Magnússon
Boxið hér er ekki nógu stórt til að segja það sem segja þarf um höfundinn.

Vinir og vandamenn

Aðrir vinir og vandamenn með blogg

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband